Svava og Erla í Sverige

24.04.2007 15:44:17 / hjukkos

Síðasta vaktin

Síðasta vaktin er bara búin hjá okkur báðum. Ótrúlegt að þessi mánuður sé að verða liðinn! Í dag mætti ég með smávegis kaffi og með því í vinnuna. Bauð svo líka upp á harðfisk og gaf deildinni disk með SigurRós eins og sönnum íslendingi sæmir8) Viðtökurnar voru ágætar, en flestum þótti tónlistin betri en fiskurinn:haha:

Nú sitjum við Erla heima, n.b. inni í góða veðrinu og vinnum hörðum höndum að því að klára þessi frábæru verkefni sem við þurfum að skila um leið og við komum heim:S Erla ætlar svo að skella sér til Stokkhólms og hitta vini sína sem hún kynntist hér fyrir nokkrum árum. Kannski kíki ég á gengið okkar: Fridu, Steffi og co.

Svo er bara von á okkur heim eftir örfáa daga. Við hlökkum rosalega til að hitta alla og knúsa kærastana:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 16:56:59 / hjukkos

Gleðilegt ÞrumuSumar

Við Erla erum sko aldeilis búnar að hafa það frábært hér í Uppsala. Veðrið hefur verið yndislegt og apríl virðist vera að slá öll hitamet hér í Svíþjóð. Við störðum hins vegar agndofa og orðlausar hvor aðra þegar sumarið tók á móti okkur með rigningu, hagléli, þrumum og eldingum... gjörið þið svo vel herrar mínir og frúr8|

Já, skjótt skipast veður í lofti eins og sagt er:$ ...og hvað þýðir vont veður fyrir okkur stúdentana??? jú auðvita: "Ok, nú hefur þú enga afsökun nú VERÐUR þú að fara að læra:(

...eða kannski blogga bara smááá fyrst og fara svo að læra. Ég lofa;)

Svava Björk


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 15:10:06 / hjukkos

10 dagar í heimför :)

Já þetta er heldur betur búið að líða hratt, dagar eftir !!!

Við erum alveg að verða búnar með verknámið okkar vúhú þannig að við höfum smá tíma í næstu viku til að klára verkefni, skoða okkur um og hitta vini okkar og svoleiðis.

Annars er bara allt gott að frétta héðan. Við fengum tvær vinkonur okkar í mat í gærkvöldi, Fridu og Steffi. Við elduðum fyrir þær mexíkó-mat og svo fórum við allar saman á skemmtistað hér rétt handan við hornið. Ég klúðraði skómálum algjörlega, mætti á svæðið í hælaskóm og sá svo eftir því tveim klukkustundum síðar þegar ég var komin með blöðrur undir báðum iljum!!! mæli ekki með hælaskóm ef maður ætlar að dansa í 3-4 tíma :) þannig að ég fór heim aðeins fyrr en Svava.

Í dag fór ég svo að skoða ungdomsteamet sem er teymi fyrir ungt fólk með geðrofssjúkdóma. Það var mjög gaman að sjá hvað þau eru með öflugt starf fyrir ungt fólk. Þau t.d. hitta krakkana á kaffihúsum eða hvar svo sem krakkarnir vilja hitta þau, eru með ýmsa hópa þar sem unga fólkið getur málað, spjallað saman og fleira. Á morgun er svo síðasti dagurinn minn á deildinni og þá ætla ég að bjóða starfsfólkinu upp á íslenskt nammi :) Svo á þriðjudaginn í næstu viku er ég að fara í heimsókn á tvær aðrar deildir.

Skrifa meira síðar:)

Hej da Erla


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 17:49:28 / hjukkos

Gleðilega páska :)

Við erum heldur betur búnar að hafa það gott yfir páskana. Andri kom í heimsókn til mín og Einar til Svövu þannig að páskarnir fóru í það að borða mat, skoða Stokkhólm, borða meira, fara á bæjarrölt, fara í verslunarferð, borða páskaegg og skemmta sér. Strákarnir fóru svo heim í gær þannig að eftir sitjum við skvísurnar og teljum niður dagana þangað til við sjáum þá næst :)

 Annars líður tíminn hér í Svíþjóð alveg ótrúlega hratt, við Svava vorum einmitt að tala um það áðan hvað okkur finnst langt síðan við vorum heima á klakanum og vorum að átta okkur á því að það eru bara 18 dagar eftir. Þannig að dömur mínar í hjúkrun það styttist óðum i prófin.

Ég ætti kannski að segja ykkur aðeins frá verknámsdeildinni minni. Þetta er bráðendurhæfingardeild fyrir einstaklinga með geðrofssjúkdóma. Deildin er fyrir einstaklinga 18 ára og eldri, en bróðurpartur sjúklinganna er í kringum þrítugt. Hjúkrunarfræðingarnir sem ég fylgi eru búnar að kenna mér heilan helling og ég er mjög ánægð með að hafa ákveðið að fara hingað til Svíþjóðar, þetta er svo skemmtileg reynsla. Mæli með að allir prófi þetta ef eitthvað þessu líkt stendur til boða.

Annars er bara allt gott að frétta af okkur, við erum náttúrulega einstaklega heppnar að hafa fengið íbúðina að láni því hún er á besta stað í bænum, þannig að við getum gengið allt sem við þurfum að fara nema kannski í verknámið :) það tæki rúmlega klukkustund. vona að þið hafið það sem allra best

Hej da Erla


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 17:02:19 / hjukkos

Fyrsta vaktin

Jæja, þá er fyrsta vaktin búin en hún gekk bara rosalega vel. Ég ætla að gefa ykkur smá "rapport" um deildina mína;) Ég verð sem sagt á eins konar acute deild fyrir einstaklinga með geðrofssjúkdóma, þó aðallega geðklofa. Á þessa deild koma sjúklingar á öllum aldri í óstabílu ástandi. Sumir eru að greinast með sinn sjúkdóm en aðrir hafa haft hann í mörg ár. Starfsmenn deildarinnar tóku ofsalega vel á móti mér og voru ákveðnir í að láta mig reyna að tala sænsku. Ég fylgdi hjúkrunarfræðingi í allan dag en fékk líka að sitja teymisfund og flettifund. Ég er hins vegar alveg búin á því og held ég hafi fengið nettan overdose af sænsku í dag. En það er sko alveg á hreinu að þetta verknám verður mjög skemmtilegt :)

Heyrumst, Svava


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 07:59:50 / hjukkos

Sjusköterskegasque

Á laugardaginn var okkur boðið á æðislega veislu sem kallast gasque og er einskonar árshátíð hjúkrunarnema. Fyrst fórum við í fyrirpartý hjá hjúkrunarnemum sem Frída vinkona okkar þekkir. Eftir partýið röltum við öll saman í Östgöta Nation þar sem Sjuksköterskegasque var haldið. Eftir fordrykk hófst veislan með trommuslætti og þá settust allir til borðs í ofsalega fallegum sal sem minnti einna helst á höll eða kastala. Sætin voru merkt með nafni og engin gat valið hvar hann sat og því hófst leit að sínu nafni. Við vorum svo heppnar að sitja hjá Fridu. Boðið var upp á þriggja rétta mat sem var glæsilegur en það sem var skemmtilegast voru allar þær hefðir sem sænskir stúdentar hafa tileinkað sér. Á meðan á borðhaldinu stóð var stöðugt verið að syngja drykkjuvísur og svo tók allur salurinn þátt í ýmsum leikjum. Einn leikurinn var t.d. þannig að allir á sama borði fóru upp á stól og sungu eins hátt og þeir gátu: “För vi har vårat glada barnasinne kvar. Men har ni erat glada barnasinne kvar”, svo bentu þau á eitthvað annað borð sem endurtók leikinn. Það sem þau eru að gera með þessu er að þau að segja hinum að þau séu ennþá ung og glöð og benda á næsta borð og mana þau í að standa upp á stól og bæta um betur og þá öskra hinir á móti. Á meðan á borðhaldinu stóð var líka fullt af skemmtiatriðum, þar á meðal kom hópur fríðra læknanema syngjandi inn í salinn og sungu um hve góður mannkostur þeir væru. Við skemmtum okkur konunglega og upp kom sú hugmynd að við mundum syngja eitt lag á íslensku og auðvitað gerðum við það og tókum lagið Klingi mjaðar raddað fyrir um 300 manns..... geri aðrir betur :) Spurning hvort þetta gildi ekki bara sem eitt stykki verkefni í geðhjúkrun eða hvað finnst ykkur. Taka skal fram að Bakkus réð ekki för þegar við sungum lagið góða :) En eitt er víst að við erum pantaðar langt fram í tíman með skemmtiatrið hér í borg. Eftir þessa frábæru veislu opnaði húsið fyrir aðra stúdenta og inn streymdu strákar í stelpuleit og var stór hluti lækna- og verkfræðinemar. Sænsk hljómsveit lék fyrir dansi og á neðri hæðinni var það skífuþeytari sem stjórnaði dansgólfinu. Eftir að hafa tjúttað ærlega lá leiðin í eftirpartý með íslenskum og sænskum nemum. Það er alveg á hreinu að þetta var frábært kvöld í alla staði og það verður seint toppað.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 19:07:45 / hjukkos

Vi älskar Uppsala

Uppsalir tóku á móti okkur med sól og blíðu en hér er 16 stiga hiti. Sólgleraugun voru rifin upp og vetrarflíkurnar settar innst inn í skáp, við þurfum víst ekki á þeim ad halda hér. Unnur tók á móti okkur á lestarstöðinni og fór med okkur í fínu fínu íbúðina. Íbúðin er í miðbæ Uppsala med útsýni yfir dómkirkjuna það er sko enginn námsmannabragur á þessu :) Á morgun ætlum vid ad hitta kennarann okkar og fara yfir hvernig verknáminu verdur háttað. Tað er búið ad bjóða okkur á árshátíd á laugardaginn hjá hjúkrunarnemum Uppsala og þar verdur vafalaust mikid fjör. Komum med sögur af tjúttinu seinna :)

 

 

Bestu kvedjur Erla og Svava


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 11:14:56 / hjukkos

Einn dagur í brottför

Velkomin á síðuna :)

Við munum reyna skrifa um það helsta sem við stöllur erum að bralla í Svíþjóð. Við erum farnar að hlakka mikið til enda ekki annað hægt!! Við ætlum að vera í Uppsölum í einn mánuð, förum í verknám í geðhjúkrun og svo munum við auðvitað skoða land og þjóð og skemmta okkur eins og sönnum Íslendingum sæmir.

Erla

 


» 2 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
9. febrúar 2012
Klukkan